Tilgreind séreign sem erfist og vex í evrum

Tilgreind séreign

Samkvæmt samningum á vinnumarkaði þá ber atvinnurekendum að greiða 11,5% af launum launþega í lífeyrissjóð.

Þú getur valið að ráðstafa 3,5% af því framlagi inn á Tilgreinda séreignartryggingu Bayern Líf, sem eins og nafnið bendir til er í séreign og erfist við andlát.

Framlagið þitt er tekjuskattfrjálst en það er tekinn tekjuskattur við úttekt.

Tilgreind séreign skerðir greiðslur frá Tryggingastofnun.

Tryggur Vöxtur (Wachstum Garant) varan frá Bayern Líf er notuð til að ávaxta þitt fé á öruggan máta.

Rafræn umsókn um Tilgreinda séreignartryggingu Bayern Líf

Frjáls séreign hjá:
Almenna – Lífsverk
Frjálsa lífeyrissjóðnum
Íslenska lífeyrissjóðnum. 


Viðskiptavinum Bayern Líf býðst að nýta það framlag sem fer í frjálsa séreign hjá Almenna – Verkís, Frjálsa lífeyrissjóðnum og Íslenska lífeyrissjóðnum sem Tilgreinda séreign (3,5%) og afganginn sem frjálsa séreignartryggingu Bayen Líf.

Með þessu móti geta viðskiptavinir nýtt sér t.d.greiðslur inn á íbúðarlán af því framlagi sem fer í tilgreinda séreign og höfuðstólstryggtfrjálsa framlagið sitt.

Gerðu þessi 3,5% að þínum sparnaði
  • 3,5 % verða þín eigin séreign
  • 90 % tryggður höfuðstóll
  • Erfanlegt að fullu
  • Fjárfest í evrum

62 ára

Útgreiðslualdur

Fyrsta útgreiðsla

3,5%

Ráðstafað af 11,5 %

Í séreign

12 ár

Lágmarks samningstími

Þýska kerfið

Þrjú lykilatriði í tilgreindu séreigninni

Höfuðstólstrygging 90 % í evrum

Sparnaðurinn þinn er verndaður gegn verðbólgu og gjaldmiðlasveiflum - 90 % höfuðstóls er tryggður samkvæmt þýskum lögum.

  • 90 % vernd í evrum
  • Engin rýrnun á höfuðstól vegna krónu
  • 90 % umframhagnaðar rennur til viðskiptavina
  • Tryggð hagnaðarhlutdeild ár hvert

Inneign erfist 100 %

Við andlát flyst uppsafnað höfuðstóls­jöfnuðurinn óskertur til erfingja og styrkir fjárhagslegt öryggi fjölskyldunnar.

  • Erfanlegt að fullu við andlát
  • Enginn erfðafjárskattur á höfuðstól
  • Greitt beint til lögerfingja
  • Tryggir stöðugleika fjölskyldunnar

Úttekt á þínum forsendum

Veldu hvort þú færð sparnaðinn sem eingreiðslu eða reglulegar mánaðar­greiðslur - jafnvel blanda af hvoru tveggja.

  • Eingreiðsla eða mánaðarlegur lífeyrir
  • Hægt að taka út hluta höfuðstóls
  • Úttekt frá 62 ára (séreign: 60 ára)
  • Aðlagað að markmiðum og skattastöðu

Spurt & svarað

Hvað er tilgreind séreign?

Tilgreind séreign er 3,5% af 11,5% skylduiðgjaldi vinnuveitanda sem þú ráðstafar í þína eigin séreign. Inneignin ber vexti, er 90% höfuðstólstryggð í evrum og erfist að fullu.

Hvenær má hefja útgreiðslu?

Frá 62 ára aldri; útgreiðsla fer samkvæmt reglum samtryggingarsjóðs sem þú greiðir í.

Er tilgreind séreign erfanleg?

Já, hún er 100% erfanleg við andlát.

Má nýta tilgreinda séreign til kaupa á fyrstu íbúð?

Já, heimilt er að ráðstafa tilgreindri séreign skattfrjálst til fyrstu íbúð, samkvæmt reglum Skattsins og reglugerð nr. 1586/2022.

Hvað felst í 90% höfuðstólstryggingu í evrum?

Höfuðstóll er verndaður í evrum og 90% umframhagnaðar rennur til viðskiptavina í formi tryggðrar hagnaðarhlutdeildar.

Hafðu samband

Takk fyrir skilaboðin, við munum svara þér eins fljótt og auðið er.
Úps, eitthvað fór úrskeiðis. Reyndu aftur eða hafðu samband í síma 535-8000

Samskiptaupplýsingar

Fljótleg svörun

Við svörum öllum fyrirspurnum eins fljótt og auðið er. Skrifstofan okkar er opin frá 09:00 - 16:00.