Der richtige Partner

Sichere Zukunft, vertrauensvolle Zusammenarbeit

Einsparungen ehf.

2002 Gründung von Sparehf. als Vertriebsgesellschaft für den Verkauf von Versicherungs- und Finanzprodukten

Fjármálaráðgjöfin hefur frá upphafi miðað að því að styðja viðskiptavini í átt að skuldleysi með markvissri niðurgreiðslu lána.

Sparnaður hefur verið stoltur þjónustuaðili Bayern Líf í tæp 20 ár og býður upp á fjölbreyttar lausnir á borð við reglubundinn sparnað, slysatryggingar, tryggðan séreignarsparnað og tilgreindan séreignarsparnað sem er að fullu erfanlegur, ólíkt því sem almennt tíðkast hjá íslenskum lífeyrissjóðum.

Í samstarfi við Aurbjörgu hefur Sparnaður aukið við þjónustu sína og veitir nú einstaklingum faglega og persónulega fjármálaráðgjöf.

Við sérhæfum okkur í endurfjármögnunarráðgjöf, skuldaráðgjöf, lánaráðgjöf fyrir fyrstu íbúðarkaup, starfslokaráðgjöf og lífeyrisráðgjöf.

Hjá Sparnaði færðu óháða og hlutlausa fjármálaráðgjöf sem tekur mið af þínum aðstæðum og markmiðum.

Lögð er áhersla á að einfalda og hámarka flókin fjármál, ásamt því að styðja viðskiptavini í að draga úr skuldum og byggja upp eignir.

Í samstarfi við Aurbjörgu byggir ráðgjöf okkar á traustum og óháðum gögnum sem styrkja greiningu, hagræðingu og ákvarðanatöku.

Þannig fá einstaklingar skýra og áreiðanlega mynd af fjárhagslegri stöðu sinni, skýra áætlun til að vinna eftir og yfirsýn yfir framtíðarmöguleika.

Við stöndum með þér í eignamyndun og vinnum markvisst að því að styrkja fjárhagslega stöðu þína til lengri tíma.